Nýjast á Local Suðurnes

AppleTV og iPadar í öllum kennslustofum

Síðastliðinn vetur var unnið af krafti að því að iPad væða ýmsar stofnanir bæjarins. Yfir 100 tæki hafa verið tekin í notkun, langsamlega flest í grunnskólanum, eða 81 iPad. Kennarar velja sér iPad eða fartölvur sem vinnutæki og meirihlutinn hefur valið að nota iPad. Guðmundur Hjálmarsson, tölvuumsjónarmaður Grindavíkurbæjar, hefur unnið hörðum höndum að því að tryggja notagildi þessara tækja undanfarin misseri.

Búið er að setja upp Apple TV í öllum kennslustofum í báðum starfsstöðvum grunnskólans og þá er búið að bæta og tryggja þráðlaus netsamband í öllum starfsstöðvum bæjarins. Nú er því ekkert að vanbúnaði að nýta krafta þessara tækja eins og kostur er.

Síðastliðinn vetur fengi flestir kennarar iPada í sínar hendur og kennarainnleiðingu því lokið og nokkrir bekkir fengu einnig að prufa sig áfram með tækin.

Meðfylgjandi myndband, sem birt var á heimasíðu Grindavíkurbæjar, sýnir nemendur í 2.S á liðnum vetri þar sem þau eru að semja tónlist í Garage Band. Þar sem áhuginn var gríðalegur, vinnusemi mikil og sköpunargleðin við hendina, endaði þetta í tveggja kennslustundaverkefni þar sem nemendur sýndu á töflu tónverkin sín.