Nýjast á Local Suðurnes

Appelsínugul veðurviðvörun – Flugi frá KEF aflýst eða því frestað

Mynd: Skjáskor Veðurstofan

Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir Suðurland og Faxaflóa vegna suðaustan roks og rigningar. Appelsínugulur er næst hæsta viðvörunarstig Veðurstofunnar.

Á Suðurlandi og Faxaflóa í kvöld er spáð suðaustan 20 til 28 metrum á sekúndu, þannig má búast við snörpum vindhviðum á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi auk þess sem spáð er mikilli rigningu. Þá eru auknar líkur taldar á foktjóni.

Þá má sjá á vef Isavia að röskun verður á flugi frá Keflavíkurflugvelli, en þeim flugferðum sem áttu að fara í loftið á milli klukkan 15 og 18 hefur verið frestað eða þeim aflýst. Flug sem eiga að fara í loftið um klukkan 19 eru hins vegar á áætlun.

Fylgjast má með uppfærslum á flugtímum hér eða fá flugtilkynningar sendar með Messenger eða Twitter. Frekari upplýsingar má einnig nálgast hjá flugfélögunum.

Viðbrögð vegna óveðurs á Keflavíkurflugvelli

Isavia, sem rekur Keflavíkurflugvöll, vinnur eftir reglum um aðgerðir og viðbrögð þegar óveðursástand skapast á flugvellinum. Þessar reglur eru grundvallaðar á því að tryggja öryggi farþega og er það ávallt sett í fyrsta sæti í þeim aðstæðum. Þegar slæmar veðuraðstæður verða á Keflavíkurflugvelli er í ákveðnum tilfellum nauðsynlegt að takmarka notkun á landgöngubrúm þannig að hægt sé að forðast slys á fólki og því til viðbótar koma í veg fyrir skemmdir á tækjum og búnaði.

  • Ef vindhviður fara yfir 50 hnúta (tæpir 26 m/s) eru allar landgöngubrýr teknar úr notkun af öryggisástæðum þ.e. til að tryggja öryggi farþega og koma í veg fyrir slys á fólki
  • Afgreiðsla loftfars er á ábyrgð flugrekanda og flugafgreiðsluaðila og er notkun stigabíla á hendi þessara aðila

Lendi loftfar við þær aðstæður að ekki er heimilt að nota landgöngubrýr skal flugvél bíða á vellinum þar til vindstyrkur fer niður fyrir viðmiðunarmörk.