sudurnes.net
Anna nálgast sjö stafa tölu í Reykjavíkurmaraþoni - Local Sudurnes
Suðurnesjakonan Anna Gunnlaugsdóttir er ein af þeim sem safnað hefur hvað mestu í gegnum vefsíðuna hlaupastyrkur.is, en þar er safnað áheitum í tengslum við Reykjavíkurmaraþon. Anna stefnir á að hlaupa 21,1 kílómeter í maraþoninu. Anna hleypur til styrktar Styrktarsjóðs Gjörgæslu, en það gerir hún eftir að bróðir hennar lenti í alvarlegu slysi og dvaldi þar í nokkurn tíma. Anna hefur, þegar þetta er ritað safnað rétt tæplega milljón krónum en markmiðið í upphafi var 300.000 krónur. “Þetta árið ætla ég að safna áheitum fyrir gjörgæsludeild Landsspítala. Í mars síðastliðnum lenti bróðir minn í alvarlegu slysi og var hann á gjörgæslu í 8 vikur, þar af voru 7 vikur sem honum var haldið sofandi. Á meðan hann safnar kröftum get ég notað mína og gefið eitthvað til baka og þakkað fyrir alla umhyggjuna og velvildina sem hann og fjölskylda hans fengu.” Segir á söfnunarsíðu Önnu. Meira frá SuðurnesjumRita sögu Keflavíkur án kostnaðaráætlunar – “Það eru að sjálfsögðu engin vinnubrögð”Engin rigning að ráði og hlýjast sunnanlands um helginaErlingur sýnir margvísleg verk í Tjarnarsal Ráðhúss ReykjavíkurLeggja á annan tug milljóna króna í að styrkja ímynd SuðurnesjaAfsökunarbeiðni frá Njarðvík – Írena Sól lagði skóna á hillunaLéku fótbolta til styrktar samnemandaMeistaranemar sýna í Listasafni ReykjanesbæjarZeto [...]