Andlát í Grindavík til rannsóknar
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar andlát sem varð í Grindavík á sjötta tímanum í dag. Fyrst var greint frá málinu á vef Fréttablaðsins en þar er lögreglan sögð hafa handtekið einn í tengslum við málið.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur samkvæmt mbl.is og Vísi.is varist allra frétta og neitar að staðfesta nokkuð, segir tilkynningar að vænta síðar.
Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hefur lögreglan gengið í nálæg hús í Grindavík og leitað vitna í tengslum við málið.