Alvarlegt umferðarslys – Reykjanesbraut lokuð milli Fitja og Grænásbrautar
Alvarlegt umferðarslys varð á Reykjanesbraut um sjöleytið í morgun og var brautinni lokað á milli Fitja og Grænásbrautar. Reykjanesbraut er enn lokuð, vegna slyssins, og er hjáleið um Njarðarbraut og Grænásbraut.
Uppfært klukkan 10.20: Reykjanesbraut hefur nú verið opnuð á ný, en brautinni var lokað rúmar þrjár klukkustundir vegna slyssins.