sudurnes.net
Alþjóðleg vottun færir aukin tækifæri - Local Sudurnes
Alþjóðleg vottun sem Reykjanes jarðvangur (Reykjanes Geopark) fékk á dögunum er flott tækifæri fyrir sveitarfélögin, íbúana og fyrirtækin að vekja athygli á því að þau búi og starfi innan jarðvangs. Þetta segir Eggert Sólberg Jónsson verkefnisstjóri jarðvangsins. Nú sé það í okkar höndum að nýta þetta tækifæri. Auk alþjóðlegrar vottunar fékk Reykjanes jarðvangur aðild að samtökunum Eurpean Geopark Network, samtökum svæða sem þykja jarðfræðilega merkileg og njóta stuðnings UNESCO, Mennta-, menninga og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Undirbúningur að vottun hófst árið 2012 með ráðningu Eggerts Sólberg Jónssonar í starf verkefnastjóra jarðvangsins. Jarðvangur er gæðastimpill á svæði sem inniheldur merkilegur eða einstakar jarðminjar og kemur þeim á framfæri. Innan Reykjanes jarðvangs þykja Atlandshafshryggurinn, flekaskilin og afleiðingar þeirra vera einstök. „Við höldum áfram að vinna að okkar verkefnum sem eru helst að vekja athygli og áhuga á jörðinni, m.a. með fræðslu og uppbyggingu innviða á áhugaverðum stöðum. Við munum líka njóta ávinnings af samstarfinu innan Global Geoparks Network m.a. með auknu markaðsstarfi og aðgengi að alþjóðlegu neti sérfræðinga. Nú reynir samt fyrst og fremst á ferðaþjónustuna, sveitarfélögin og aðra hagsmunaðila að nýta sér Reykjanes Geopark í starfsemi sinni, t.d. markaðssetningu,“ segir Eggert Sólberg Jónsson verkefnastjóri. Jarðvangurinn hefur opnað nýjan vef á slóðinni http://www.reykjanesgeopark.is. [...]