sudurnes.net
Allt kapp lagt á að klára framkvæmdir við nýtt íþróttahús - Local Sudurnes
Það var fjölmennt á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í gær þegar framkvæmdir við 2. áfanga Stapaskóla voru ræddar, en um er að ræða byggingu íþróttahúss og sundlaugar. Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, eftirlitsmaður nýframkvæmda, deildarstjóri eignaumsýslu og eftirlitsmaður frá VSB verkfræðistofu mættu á fundinn hvar lagt var fram minnisblað um stöðu framkvæmda og horfur á verklokum. Minnisblaðið er trúnaðarmál, samkvæmt fundargerð, en bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum yfir þeim töfum sem orðið hafa á verkinu og leggur áherslu á að allt kapp verði lagt á að klára 2. áfanga Stapaskóla sem allra fyrst. Meira frá SuðurnesjumFékk stuð við að reyna að stela klinkiAukin skjálftavirkni í GeldingadölumStærsti skjálfti ársins mældist í morgunRæða breytingar sem framundan eru hjá flugrekstraraðilum á HeklufundiTímabært að Reykjanesbær stofni afrekssjóð fyrir ungt íþróttafólkÞökkuðu ánægjulegt samstarf á síðasta fundinumLaun bæjarfulltrúa og bæjarráðsmanna Reykjanesbæjar hækka um 17%Undirskriftarsöfnun vegna kísilvera ekki í samræmi við gildandi sveitarstjórnarlögRáðherra vill móttökubúðir fyrir flóttafólk sem næst landamærunumKeflavík hvetur iðkendur til að tilkynna um mögulega hagræðingu úrslita