sudurnes.net
Allt að tíu einstaklingar verða í öryggisvistun í Dalshverfi - Local Sudurnes
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samþykkt að endurskoða aðalaskipulag nýs hverfis í Innri Njarðvík, Dalshverfis 3, í kjölfar umsóknar Félagsmálaráðuneytisins um lóð í hverfinu. Ætlunin er að reisa öryggisvistun fyrir ósakhæfa einstaklinga, en viðræður við ráðuneytið hafa staðið yfir í rúmlega ár. Annars vegar er um að ræða að finna hentugt húsnæði undir rekstur öryggisgæslu og öryggisvistunar til 24 mánaða fyrir 2-3 einstaklinga sem þurfa á öryggisgæslu að halda og hins vegar útvegun lóðar fyrir byggingu húsnæðis fyrir 6 – 7 einstaklinga sem þurfa á öryggisgæslu og öryggisvistun að halda. Fyrir utan störf sem skapast á byggingatíma húsnæðis þá er reiknað með að a.m.k. 30 starfsmenn muni starfa við öryggisgæslu og vistun þegar starfsemin er komin í fullan gang, en í skammtímaúrræðinu er gert ráð fyrir störfum fyrir a.m.k. 15 – 20 starfsmenn. Með þessu verkefni leggur félagsmálaráðuneytið áherslu á að styðja við atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum, auka breidd í atvinnulífinu, skapa tækifæri til þróunar námstilboða í samstarfi við menntastofnanir á svæðinu og almenna styrkingu þekkingar og færni í velferðarþjónustu á Suðurnesjum. Félagsmálaráðuneytið óskar eftir milligöngu Reykjanesbæjar um útvegun húsnæði til reksturs öryggisgæslu og öryggisvistunar til skemmri tíma annars vegar, sem farið getur af stað í haust, og hins vegar útvegun lóðar 1500 [...]