sudurnes.net
Allt á einum stað í íbúagátt Reykjanesbæjar - Local Sudurnes
Hvað ef strætókortið væri samtengt sundkortinu og bókasafnskortinu og á heimasíðu Reykjanesbæjar væri rafræn íbúagátt þar sem hægt væri að kaupa og endurnýja áskriftir að þessum þjónustum bæjarins. Og hvað ef þú gætir séð stöðuna og notkun á kortunum, hvar og hvenær börnin fóru í strætó eða í sund og hvort þú sér komin fram yfir skiladag á bókinni af bókasafninu eða ættir bara þrjú skipti eftir í sund. Svo útvíkkum við hugmyndina og gerum kortið að snjallsíma-appi svo þú getir notað símann þinn í staðinn fyrir hefðbundið kort og tengjum aðra þjónustuþætti og upplýsingar frá bænum við „notendareikninginn“ að íbúagáttinni; eins og til dæmis skólamatinn í grunnskólum, hvatagreiðslurnar, ferðaþjónustu fatlaðra og fasteignagjöld. Framtíðarsýn okkar sjálfstæðismanna fyrir þjónustu Reykjanesbæjar er að hafa allt á einum stað og einfalda samskiptin við stjórnsýsluna með nútímalegri og öflugri íbúagátt. Stafræn umbreyting fellst í því að endurhugsa hvernig við höfum alltaf gert hlutina og nálgast viðfangsefni frá sjónarhorni notenda. Þannig leitum við leiða til að bjóða upp á aukna sjálfsþjónustu og sjálfvirkni og um leið styrkja starfsmenn bæjarins með réttum upplýsingum og tólum til að geta veitt bestu mögulegu þjónustu til íbúa. Á komandi kjörtímabili þarf að samræma hin ýmsu umsóknareyðublöð, sérstaklega er snúa [...]