sudurnes.net
Aldrei fleiri vísað frá við komu til landsins - Local Sudurnes
Aldrei hefur fleiri farþegum verið vísað frá landinu á Keflavíkurflugvelli við komu til landsins, en flestir þeirra eru þriðja ríkis borgarar sem koma hingað með flugi frá öðru Schengen ríki. Nú eru 258 frávísunarmál skráð það sem af er ári. Tölur sem ekki hafa sést áður, segir í tilkynningu sem birt er á vef lögreglu. Breytt verklag og skipulag löggæslu á flugvellinum hefur eflaust breytt hér miklu ásamt góðu samstarfi við tollgæslu. Ástæður frávísana geta verið margar en þar fer mest fyrir frávísunum einstaklinga frá landinu vegna tengsla þeirra við brotastarfsemi. Mikilvægt er að starfsemi lögreglu og tollgæslu á Keflavíkurflugvelli sé öflug og vel þjálfaður mannskapur sé til staðar auk nauðsynlegs tækjabúnaðar og viðunandi starfsaðstöðu. Samstarf Evrópuríkja á sviði lögreglusamstarfs og landamæraeftirlits sem byggist á Schengen samningnum er gríðarlega umfangsmikið og krefjandi ekki síst fyrir Ísland svo fjarri meginlandi Evrópu. Íbúar á Schengen svæðinu eru yfir 400 milljónir. Þeim er heimilt að fara yfir innri landamæri Schengen-svæðisins án þess að landamæraeftirlit fara fram, án tillits til ríkisfangs. Samkvæmt lögum um landamæri er fyrirtækjum sem annast flutning farþega til og frá landinu skylt að afhenda lögreglu upplýsingar um farþega og áhöfn. Þá er lögreglu heimilt að safna og skiptast á upplýsingum [...]