sudurnes.net
Ákærðir fyrir fjölda lögbrota - Local Sudurnes
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært tvo karlmenn á fertugsaldri fyrir fjölda lögbrota, þar á meðal tvö innbrot, þjófnað, vopnalagabrot, og fíkniefna- og umferðarlagabrot. Mál þeirra verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Fengu sér vínsopaInnbrot mannanna tveggja áttu sér stað á Suðurnesjum í ágúst árið 2013. Höfðu þeir á brott með sér sjónvörp, tölvur, myndavélar og önnur raftæki, ásamt fatnaði, verkfærum og fleiru. Húsráðandi sem Vísir ræddi við í kvöld sagði lífsýni hafa komið upp um mennina. Þeir hafi drukkið úr áfengisflösku sem hafi verið inni í vínskáp og lögregla tekið með sér til rannsóknar. Áætlað verðmæti stolnu munanna nemur hundruðum þúsunda. Þetta kemur fram á Vísi.is Það má lesa meira um málið hér. Meira frá SuðurnesjumTvöföldun í bakgrunnsathugunum það sem af er ári á KeflavíkurflugvelliHeimavellir í sókn á Suðurnesjum – Keyptu allar eignir TjarnarverksStolið fyrir hundruð þúsundaEvrópumót í glímu og öldungamót blaki haldin í ReykjanesbæMikilvægt að vel takist til við heildaruppbyggingu alþjóðaflugvallarinsRáðuneyti reynir að þvinga Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum í að falla frá skaðabótamáliHrópandi blaðamaður á stuttbuxum elti stjörnulögfræðing á röndumAðstoðuðu við slökkvistarf í BorgarnesiHættuleg gatnamót við Hringbraut – Ljósin til en ekki fjármagnið til að setja þau uppTvöföldun Reykjanesbrautar boðin út á næsta ári