sudurnes.net
AK-47 árásarriffill og afsagaðar haglabyssur á meðal þess sem gert var upptækt - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum taldi ekki ástæðu til að gera mikið úr húsleitarmáli sem upp kom í Innri-Njarðvík á þriðjudag, samkvæmt vefmiðlinum Vísi.is, en sjö voru handteknir í aðgerðinni þar sem lagt var hald á skotvopn og fleiri tegundir vopna, auk töluverðs magns af kannabisefnum og amfetamíni. Nokkur fjöldi lögreglumanna, íklæddir skotheldum vestum, tók þátt í aðgerðinni, auk þess sem fíkniefnahundur var til taks á svæðinu. Kvennablaðið hefur heimildir fyrir því að á meðal vopna sem vitni báru kennsl á og borin voru út úr húsnæðinu af lögreglumönnum hafi verið afskornar haglabyssur og að minnsta kosti einn AK-47 árásarriffill. Þá kemur fram í frétt Kvennablaðsins, líkt og í frétt Vísis, að lögregla hafi ekki tjáð sig um þessa aðgerð. Meira frá SuðurnesjumTjá sig ekki um aðgerðir lögreglu í GrindavíkÞrír lögreglubílar í eftirför á Reykjanesbraut – Fóru aldrei yfir 70 km hraðaUppsögn Margrétar á sér langan aðdraganda – Yfirlýsing stjórnar Kkd. KeflavíkurMeintir Suðurnesjamenn handteknir í höfuðborginniNjarðvíkingar afla gagna vegna stöðu BonneauOddný býður sig fram til formanns – Vill ókeypis heilbrigðisþjónustuLeifur metinn hæfastur umsækjendaBreytingar á sorphirðu á Ásbrú til skoðunarBonneau mögulega áfram hjá Njarðvíkingum þrátt fyrir meiðsliFimm á ferðinni í vinnuvél – Stjórnandinn réttindalaus