Air Berlin býður upp á flug á milli Düsseldorf og Keflvíkur allt árið um kring - Local Sudurnes
Forvarsmenn þýska flugfélagsins Air Berlin hafa ákveðið að fljúga til Íslands allt árið um kring frá Düsseldorf. Hingað til hefur aðeins verið hægt að fljúga til þýsku borgarinnar yfir sumarmánuðina. Greint er frá þessu á vefnum Túristi.is. Flugfélagið, sem er það næststærsta í Þýskalandi, hefur boðið upp á sumarferðir til landsins síðustu ellefu ár, auk þess sem félagið bauð upp á flug til Berlínar síðastliðinn vetur. Í fréttinni segir að sala á ferðum Air Berlin á milli Keflavíkurflugvallar og Düsseldorf í vetur hafi farið mjög vel af stað og útlitið því gott fyrir þessa nýju heilsársflugleið félagsins á Íslandi. Líkt og í Berlínarflugi Air Berlin verður flogið tvisvar í viku hingað til lands frá Düsseldorf, alla fimmtudaga og sunnudaga. Meira frá SuðurnesjumWizz Air flýgur beint til Budapest og Varsjár allt árið um kringIsavia kyrrsetur flugvél Air Berlin – Starfsfólk aðstoðar farþega í vandræðumÞrír farþegar Air Berlin urðu eftir á Íslandi – Skulda umtalsverðar upphæðirÍslenskir farþegar Air Berlin: “Vissum að eitthvað væri að þegar við fengum ekki að fara upp að flugstöðinni”Wizz Air með beint flug milli Keflavíkur og KrakáRöskun á höfuðborgarstrætó og tafir á millilandaflugiVinnumálastofnun lengir opnunartíma fyrir starfsfólk WOWAir Canada hefur sumarflugiðRekstur Keilis þungur – Reynt að tryggja rekstrargrundvöllinn með sölu [...]