Nýjast á Local Suðurnes

Áhersla lögð á fjölbreytt og skapandi nám í nýrri menntastefnu Reykjanesbæjar

Ný menntastefna Reykjanesbæjar hefur verið birt á vefsíðu sveitarfélagsins, en þar kemur fram að nýrri menntastefnu sé ætlað að vera heildstæð áætlun um það hvernig nám á öllum skólastigum, leikur, listir og íþróttir fléttast saman og stuðlar sameiginlega að því að undirbúa unga fólkið okkar sem best undir það að vera virkir þátttakendur í samfélagi 21. aldarinnar.

Í nýrri menntastefnu er lögð áhersla á aukna þátttöku unga fólksins sjálfs, öryggi í starfi og leik, læsi í víðum skilningi og merkingarbært, fjölbreytt og skapandi nám. Með áherslur nýrrar menntastefnu að leiðarljósi munum við byggja upp réttláta, hamingjusama og sjálfbæra framtíð fyrir börnin okkar í Reykjanesbæ.

Menntastefna Reykjanesbæjar – 2MB