Áframhaldandi varðhald vegna 200 milljón króna þjófnaðar
Tveir karlmenn sem hafa setið í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglunnar á Suðurnesjum á innbrotum í gagnaver í Reykjanesbæ og Borgarbyggð hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald fram til föstudagins 2. mars. Þetta staðfestir lögreglan á Suðurnesjum.
Brotist var inn á þreimur stöðum og reynt að brjótast inn á þeim fjórða, en alls var 600 tölvum stolið og er verðmæti þýfisins talið nema rúmum 200 milljónum króna.
Innbrotin þrjú voru framin á tímabilinu frá 5. desember síðastliðnum til 16. janúar. Þeim er lýst sem „þaulskipulögðum“. Rannsókn málsins er nokkuð umfangsmikil, enda er það álitið tengjast skipulagðri glæpastarfsemi, og hafa alls níu manns verið handteknir.