sudurnes.net
Áfram skert starfsemi hjá Reykjanesbæ - Local Sudurnes
Útlit er fyrir að heitt vatn verði ekki komið að fullu á bæinn fyrr en í fyrsta lagi í lok dags á sunnudag, 11. febrúar. Í ljósi þess verður áfram skerðing á þjónustu í starfsemi sveitarfélagsins sem hér segir: Laugardagur 10. febrúar • Allar sundlaugar lokaðar • Íþróttahús lokuð og öllum kappleikjum aflýst • Starfsemi velferðarsviðs verður með eftirfarandi hætti: ◦ Hefðbundin starfsemi í sérstökum búsetuúrræðum. Suðurgata, Seljudalur og Stapavellir. ◦ Heima- og stuðningsþjónusta verður skert en haldið verður uppi nauðsynlegri þjónustu. • Félagsmiðstöð / 88 hús – lokað • Söfn – lokuð Sunnudagur 11. febrúar • Allar sundlaugar lokaðar • Íþróttahús lokuð og öllum kappleikjum aflýst • Starfsemi velferðarsviðs verður með eftirfarandi hætti: ◦ Hefðbundin starfsemi í sérstökum búsetuúrræðum. Suðurgata, Seljudalur og Stapavellir. ◦ Heima- og stuðningsþjónusta verður skert en haldið verður uppi nauðsynlegri þjónustu. • Félagsmiðstöð / 88 hús – lokað • Söfn – lokuð Neyðarstjórn Reykjanesbæjar fylgist grannt með gangi mála og mun upplýsa um tilhögun starfsemi á vegum sveitarfélagsins út frá stöðunni hverju sinni. Ef allt gengur að óskum með nýja hjáveitulögn má gera ráð fyrir að starfsemin verði með hefðbundnum hætti á mánudagsmorgun en auðvitað með þeim fyrirvara að nægur hiti verði kominn á starfsstöðvar. [...]