Nýjast á Local Suðurnes

Áfram bólusett á fullu – Minna fólk á að skrá símanúmer

Áfram verður bólusett gegn kórónuveirunni á Suðurnesjum fimmtudaginn 10. júní, í húsnæði landhelgisgæslunnar á Ásbrú.

Að þessu sinni fá öll fædd árið 1998 og fyrr, boð um bólusetningu, en í umframhópi í þessari viku eru þau sem eru fædd árið 1999-2004. Þau gætu átt von á boðun og eru hvött til að fylgjast með símum sínum.

Alls verða gefnir um 2.800 skammtar í þessari viku, en í næstu viku er von á enn stærri sendingu og er þá vonast til að klára alla þá sem ekki hafa enn fengið bólusetningu.

Athygli er vakin á því að allmargir skjólstæðingar HSS eru ekki með skráð símanúmer á þeim listum sem HSS berast frá Embætti landlæknis og gætu því hafa misst af boðun í bólusetningu.

Þau sem eru skráð á heilsugæslur HSS og eru í þeim aldurs- eða forgangshópum sem eiga að vera búinn að fá boðun, en hafa ekki fengið, eru beðin um að senda skilaboð á hss@hss.is með upplýsingum um nafn, kennitölu og símanúmer og þau munu í framhaldinu fá boð.