sudurnes.net
Afmælisveisla Hanyie haldin á Klambratúni - Mörg hundruð Íslendingar mæta - Local Sudurnes
Mörg hundruð Íslendingar ætla að gera draum Hanyie, ellefu ára flóttastúlku frá Afganistan að veruleika á morgun með því að slá upp afmælisveislu fyrir hana á Klambratúni, þrátt fyrir að hún verði ekki tólf ára fyrr en í október. Stúlkunni og föður hennar verður vísað úr landi á næstu dögum. Veislan verður haldin á morgun, 2. águst og hefst klukkan 16 og munu nokkrir þekktir einstaklingar sjá um skemmtiatriði í veislunni, þeirra á meðal söngkonan Þórunn Antonía. Hanyie stundar nám í Keflavík og á vini bæði í Keflavík og Reykjavík. „Það er frábært fólk á Íslandi og þess vegna vil ég halda afmæli mitt hér. Ég er ekki viss um að neinn muni mæta ef ég held afmælið mitt í Þýskalandi,“ segir hún í samtali við fréttastofu Stöðvar 2. Þeir sem vilja leggja feðginunum lið geta styrkt þau með því að leggja inn á eftirfarandi styrktarreikning: 0513-14-406615 / kt. 091082-5359 Hér má finna viðburðinn á Facebook. Meira frá SuðurnesjumNanna Bryndís: “Svefnherbergið var minn mest skapandi staður“Isabella Ósk semur við NjarðvíkFella niður fæðisgjald fyrir þriðja barn í grunnskólumJónsdóttir & Co. kynnir ungbarnavörur úr lífrænni bómull á LjósanóttKarl Gauti Hjaltason: “Allir þegnar okkar fallega lands ættu að geta lifað með reisn”Náungakærleikur í [...]