Nýjast á Local Suðurnes

Ærslabelgur á Ásbrú

Á dögunum var tekin í notkun nýr ærslabelgur á Ásbrú en hann er staðsettur við enda fjallahjólabrautarinnar í brekkunni við Skógarbraut.

Reykjanesbær og Kadeco óska íbúum til hamingju með nýja leikaðstöðu sem er liður í heilsueflandi sveitarfélagi og styður jafnt við íbúa sem og aðra gesti, segir í tilkynningu. Því er beint til allra sem mæta að ganga vel um og passa sig að fara ekki inn á belginn í skóm, hlaupahjólum eða öðru sem getur skemmt hann.

Ærslabelgurinn er opinn frá kl. 10:00 til 22:00