sudurnes.net
Aðventusvellið opnar - Local Sudurnes
Um helgina bætist glæný og spennandi viðbót við Aðventugarðinn í Reykjanesbæ þegar Aðventusvellið verður tekið í notkun en það verður staðsett í skrúðgarðinum í Keflavík. Þar gefst fjölskyldum einstakt tækifæri til að upplifa saman gleðilegar stundir með hressandi útivist og hreyfingu. Til stendur að hafa svellið opið fyrir almenning frá laugardeginum 18. desember og fram í mars á næsta ári ef vel gengur. Það er Orkustöðin ehf. sem hefur tekið að sér reksturinn á svellinu í samstarfi við Reykjanesbæ. Síðastliðið sumar fór fram hugmyndasöfnun á íbúavefnum Betri Reykjanesbær þar sem hugmyndin um ævintýralegt leiksvæði í skrúðgarðinum hlaut gott fylgi. Með tilkomu skautasvellsins má segja að sú hugmynd sé að raungerast og nú verði dálitlu ævintýri bætt við Aðventugarðinn. Skautasvellið er 200 fermetrar að stærð og er umhverfisvænt þar sem það þarfnast hvorki raforku né vatns en svellið samanstendur af sérhönnuðum plötum sem hafa sömu eiginleika og venjulegur ís. Þá er einnig minni slysahætta á þessu svelli þar sem það gefur aðeins eftir ólíkt hefðbundnum ís. Til stendur að skautasvellið verði opið fimmtudaga til sunnudags og þurfa gestir að bóka heimsókn á vefsíðunni adventusvellid.is eða í sérstöku appi sem verður klárt innan tíðar og nánar er hægt að kynna sér á [...]