sudurnes.net
Aðstoðuðu við slökkvistarf í Borgarnesi - Local Sudurnes
Um kl 21:30 í gærkvöldi barst Brunavörnum Suðurnesja hjálparbeiðni frá Borgarnesi, vegna mikilla gróðurelda. Tankbíll, dælubíll og eiturefnabíll, sem er með loftbanka til að fylla á reykköfunartæki, voru sendir á staðinn auk átta manna. Útkallið var langt, en menn voru að skila sér í hús til baka um klukkan sex að morgni. Aðstæður á vettvangi voru erfiðar, og þurfti að leggja út töluvert af slöngum til að komast að eldinum. Slökkvilið Borgarbyggðar og brunavarnir Suðurnesja undirrituðu samstarfssamning árið 2013, um samstarf við slökkvistörf og mengunaróhöpp. Nú þegar líður á sumarið, geta orðið miklir þurrkar, og ber þar að varast að vera með eld í kringum þurran gróður. Meira frá SuðurnesjumKeflavíkurflugvöllur lokast sjaldan vegna veðursHagnaður HS Orku eykst um rúman milljarð krónaAfhentu fjölskyldum langveikra barna styrkiTekjur á hvert stöðugildi hjá Icelandair Group um 40 milljónir á áriLaun bæjarfulltrúa og bæjarráðsmanna Reykjanesbæjar hækka um 17%Engin veikleikamerki í rekstri Grindavíkur – Langtímaskuldir aðeins 4.000 krónur á íbúaÁkærðir fyrir fjölda lögbrotaRáðuneyti reynir að þvinga Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum í að falla frá skaðabótamáliFlutningsjöfnuðurinn innanlands hagstæðastur á SuðurnesjumHandflokka þúsundir taskna – Fimm millj­ón­ir taskna fara um flokk­un­ar­kerfið í ár