Aðstandendur hugi að eldri borgurum - Local Sudurnes
Starfsfólk félagsþjónustu Suðurnesjabæjar hefur staðið vaktina síðustu vikur til að mæta þeim miklum áskorunum sem velferðarþjónustan stendur frammi fyrir á þessum krefjandi tímum. Þjónustustofnunum hefur verið lokað eða þjónusta skert og þar með nauðsynlegt að útbúa einstaklingsmiðaðar lausnir fyrir þjónustuþega. Félagsstarf aldraðra í Miðhúsum og Auðarstofu hefur verið lokað síðan 9. mars og skammtímavistun fyrir börn í Heiðarholti einnig. Starfssemi heimaþjónustunnar hefur haldist nánast óskert en þar er félagslegri heimaþjónustu sinnt ásamt aðstoð við búðarferðir, öryggisinnlit og heimsendan mata alla virka daga. Boðið verður upp á heimsendan mat um páskana. Starfsfólk hefur síðustu daga og vikur unnið að því að hringja í þjónustuþega til að fylgjast með stöðu mála og líðan. Þessa dagana er starfsfólk að sinna úthringiverkefni sem snýr að því að hringja í alla eldri borgara 85 ára og eldri í Suðurnesjabæ og Vogum. Suðurnesjabær hvetur eldri borgara til að huga vel að næringu sinni, hreyfingu og svefn á þessum tíma. Þá eru fjölskyldur hvattar til að standa saman og aðstandendur aldraðra til að huga vel að þeim. Félagsráðgjafar sinna viðtölum í síma og í fjarfundum og hægt er að hafa samband í síma 425-3000 eða á netfang sveitarfélagsins afgreidsla@sudurnesjabaer.is Meira frá SuðurnesjumVonast til að geta boðið eldri borgurum [...]