sudurnes.net
Aðlögunaráætlun stendur í vegi fyrir lækkun á fasteignaskatti - Local Sudurnes
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum að vísa fjárhagsáætlun 2019-2022 til síðari umræðu þann 4. desember næstkomandi. Í umræðum um áætlunina kom fram að lítið svigrúm sé til lækkunar á skattprósentu fasteignaskatts, sem þó verður lækkaður úr 0,46% í 0,36% og er það gert til þess að koma til móts við hækkun sem varð á fasteignamati. Meirihluta bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi bókun á fundinum: „Fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára áætlun bera þess merki að áfram er unnið skv. aðlögunaráætlun, með það að markmiði að uppfylla þær fjárhagslegu skyldur sem sveitarfélaginu ber að uppfylla. Gert er ráð fyrir jákvæðri afkomu sveitarfélagsins á næsta ári upp á rúman 1,1 milljarð hjá samstæðu og 134 milljónum hjá bæjarsjóði. Þetta gerir það að verkum að skuldaviðmið fer úr 181% í 175% og mun halda áfram að lækka. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði eða EBITDA verður 23% sem skilar jákvæðri rekstarniðurstöðu þrátt fyrir að vaxtagjöld séu 2,5 milljarðar. Það er ljóst að mikil fólksfjölgun eykur á þörf sveitarfélagsins til fjárfestinga og því mikilvægt að fjárhagslegum markmiðum verið náð eins og fljótt og kostur er, en í síðasta lagi í árslok 2022. Má þar nefna mikla fjárfestingu vegna Stapaskóla og annarra skólamannvirkja. Einnig er ráðgert að hefja vinnu við að [...]