Nýjast á Local Suðurnes

Aðeins neikvæðir fá að mæta í Ljónagryfjuna

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur hefur ákveðið að fram til 8. desember verði gestir og stuðningsmenn á heimaleikjum Njarðvíkur að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi. Það er ósk stjórnar að fleiri en 100 vallargestir í tveimur 50 manna hólfum eigi kost á því að sjá liðin okkar leika í Subwaydeildunum.

Pláss verður fyrir allt að 500 vallargesti sem þá þurfi að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi sem megi ekki vera eldra en 48 klst. gamalt þegar leikur hefst. Fyrir fólk búsett í Reykjanesbæ er m.a. hægt að fara í hraðpróf við Aðaltorg – nánar hér.

Allir gestir á leikjum í Ljónagryfjunni fæddir 2015 og eldri eru innan viðmiðunarhóps ofangreindra sóttvarna en nánar má lesa sig til um gildandi sóttvarnir hér á heimasíðu KKÍ.