sudurnes.net
Aðalsafnaðarfundur - "Undir safnaðarmeðlimum komið hvernig hlutunum verður háttað í sókninni" - Local Sudurnes
Aðalsafnaðarfundur Ytri-Njarðvíkursóknar fer fram að lokinni messu sunnudaginn 10. apríl, en sem kunnugt er hafa fjárreiður sóknarinnar verið til athugunar hjá Ríkisendurskoðun og Kirkjuráði undanfarna mánuði. Athugunin snýr annarsvegar að Líknarsjóði Ytri-Njarðvíkurkirkju, vegna kvörtunar frá Kvennfélagi Njarðvíkur, varðandi matarkort fyrir alls tvær milljónir króna sem virðist ekki hafa skilað sér til bágstaddra og hinsvegar að bílastyrkjum sóknarprests. Þórir Jónsson fyrrverandi meðhjálpari við Ytri-Njarðvíkurkirkju segir mikilvægt að fólk mæti á fundinn ef það vill fá upplýsingar um þessi mál. “Ef fólk vill fá upplýsingar um starf og rekstur kirkjunnar er aðalsafnaðarfundurinn rétti vettvangurinn. Það eru um fimm þúsund manns í prestakallinu og það er undir safnaðarmeðlimum komið hvernig hlutunum verður háttað í framhaldinu, til dæmis með kosningu í sóknarnefnd,” segir Þórir. Séra Baldur Rafn Sigurðsson skrifaði í lok janúar opið bréf til sóknarbarna sinna sem birt var á vef héraðsfréttamiðils Víkurfrétta, þar skýrir hann sína hlið mála. Í bréfinu kemur fram að Baldur muni afþakka þær greiðslur sem eru til skoðunar hjá Kirkjuráði. “Þegar ég tók við starfi sóknarprests í Njarðvíkurprestakalli fyrir 24 árum voru mér boðin sambærileg kjör og forvera mínum. Hluti af þeim kjörum voru greiðslur sem ætlað var að mæta hluta af útlögðum kostnað prestsins vegna akstur sem var ekki einsdæmi. Sitt [...]