Nýjast á Local Suðurnes

Á tvöföldum hámarkshraða innanbæjar

Sex ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Einn þeirra ók á rúmlega tvöföldum hámarkshraða eða 63 km hraða þar sem hámarkshraðinn er 30 km á klukkustund.

Þá voru þrír ökumenn handteknir grunaðir um vímuefnaakstur. Loks voru skráningarnúmer fjarlægð af fjórum bifreiðum sem voru ýmis ótryggðar eða óskoðaðar