Á sjó í Listasafni Reykjanesbæjar
Pop-up listasýningin Á sjó opnar fyrir almenna sýningu í Listasafni Reykjanesbæjar miðvikudaginn 13. janúar næstkomandi.
Sýningin er tenging við sögu Suðurnesja og staðsetningu Duus Safnahúsa við sjóinn og smábátahöfnina. Listasafnið á mikið safn verka sem sýna sjómenn að störfum, báta í höfn og sjósett skip.
Þeir listamenn sem eiga verk á sýningunni eru Áki Gränz, Ásta Árnadóttir, Eiríkur Smith, Eggert F. Guðmundsson, Finnur Jónsson, Jón Gunnarsson, Jón Stefánsson, Jónas Marteinn Guðmundsson, Kjartan Guðjónsson, Óskar Jónsson, Steinþór Marinó Gunnarsson og Sveinn Björnsson.