Nýjast á Local Suðurnes

Á rúntinum með hníf og fíkniefni innan klæða

Lögreglan á Suðurnesjum hefur haldlagt nokkuð af fíkniefnum á undanförnum dögum. Í bifreið sem lögreglumenn stöðvuðu voru fimm einstaklingar sem allir voru í annarlegu ástandi. Ökumaðurinn reyndist hafa neytt amfetamíns og var einnig sviptur ökuréttindum. Farþegi var með hníf í buxnastreng og sprautunálar og amfetamín í umbúðum í nærbuxum. Annar farþegi var einnig með amfetamín innan klæða. Hinn þriðji var með slatta af töflum í fórum sínum sem hann gat ekki gert grein fyrir. Að auki  fundust nokkrir amfetamínpokar í bifreiðinni. Loks fundust sterar við húsleit hjá einum farþeganna sem lögregla gerði í kjölfarið.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005.  Í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.