sudurnes.net
Á fleygiferð undir áhrifum fíkniefna með brotna framrúðu og engar bremsur - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af þremur ökumönnum í vikunni vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum fíkniefna. Sú reyndist raunin og voru þeir handteknir og færðir á lögreglustöð. Einn þeirra var einnig staðinn að hraðakstri því bifreið viðkomandi mældist á 126 km. hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. hraði. Ökumaðurinn reyndist hafa meðferðis fimm poka, fjóra með kannabisefnum og einn með hvítu dufti. Jafnframt voru skráningarmerki tekin af bifreiðinni því hemlar hennar voru nær óvirkir og framrúðan brotin. Þá voru á annan tug ökumanna kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 135 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Meira frá SuðurnesjumDagbók lögreglu: Kærður fyrir vímuefnaakstur og vopnalagabrotMeð allt niðrum sig í umferðinni – Þrír handteknirMeð kannabisrafrettu á 135 km hraðaTekinn á 145 á GrindavíkurvegiFær 90.000 króna sekt fyrir hraðakstur – Lögregla með klippur á loftiRökuðu inn milljónum króna á nokkrum dögum – “Margborgar sig að fara að umferðarreglum”Hundrað þúsund kall í sekt fyrir hraðaksturStöðvuðu 150 ökumennTekinn grunaður um ölvunarakstur á 140 kílómetra hraða með barn í bílnumMannlaus bifreið sem flautaði ótt og títt raskaði næturró íbúa