sudurnes.net
Á fimmta tug ungmenna hlýddu á fyrirlestur um skaðsemi vímuefna - Local Sudurnes
Unglingaráð UMFN stóð á dögunum fyrir fyrirlestri um skaðsemi vímuefna fyrir yngriflokka félagsins. Á fyrirlesturinn mættu um 40 ungmenni á aldrinum frá 12-17 ára og nokkrir foreldrar með þeim. Elfar Þór Guðbjartsson sem æfði á sínum yngri árum körfuknattleik með UMFN kom og hélt frábæran fyrirlestur. Elfar hefur glímt við áfengis og fíkniefnavanda í fjölda ára en hefur nú sigrast á honum með mikilli báráttu og dugnaði. Fyrirlesturinn var einkar góður og áhrifaríkur, segir á heimasíðu UMFN og þar er Elfari færðar bestu þakkir fyrir að koma og segja sína sögu. Meira frá SuðurnesjumWolt brunar með mat um ReykjanesbæFái frítt í sund gegn gjaldiYfir 100 sjálfboðaliðar hreinsuðu rusl á íþróttasvæðum KeflavíkurTaktu jólamyndina í gamaldags jólastofuLeiðinlegir íbúar Innri Njarðvíkur sameinast – “Skemmtilegast að ræða lausagöngu dýra”Suðurnesjabloggari gagnrýnir skyndibitasala – Kílóið af papríku á 25.000 kallAftur til fortíðar: Myndaleikur Isavia – Sjáðu allar myndirnar!Framtíðarþing um farsæl efri ár í Reykjanesbæ – Óskað eftir þátttakendumReykjanesbær verði heilsueflandi samfélagGrenndargámar komnir upp á Suðurnesjum