sudurnes.net
85% Suðurnesjamanna hafa verslað í Costco - Stór hluti af ráðstöfunartekjum fer í Garðabæinn - Local Sudurnes
Suðurnesjamenn eru duglegastir allra að versla í Costco, ef frá eru taldir íbúar Garðabæjar, en um 85% íbúa á Suðurnesjum hafa verslað í Costco frá því verslunin opnaði í Kauptúni í Garðabæ fyrir þremur mánuðum, samkvæmt tölum frá Markaðsvakt Meniga. Markaðsvaktin byggir á nafnlausum greiningum á neyslumynstri íbúa Meniga hagkerfisins. Þetta kom fram í Kastljósi í kvöld, en þar kom einnig fram að íbúar á Suðurnesjum versla fyrir tæplega 77.000 krónur af ráðstöfunartekjum fjölskyldu að meðaltali á mánuði í Costco. Rétt er að taka fram að þetta á ekki eingöngu við um matvöru, heldur allar vörur, þar með talið bensín. Þáttinn í heild sinni má sjá hér. Meira frá SuðurnesjumSuðurnesin og Vestfirðir einu svæðin á landinu þar sem ekki er boðið upp á ódýrasta kost á eldsneytiHæsta eldsneytisverð í heimi á SuðurnesjumVogar vilja ekki vegatollaRýmingaráætlun klár fyrir GrindavíkVilhjálmur vill einkavæða FríhöfninaGeta ekki sofið vegna hávaða – “Ég brjálast!”Meirihluti íbúa Reykjaness hlynntur vopnaburði lögreglu á fjöldasamkomumHafa áhyggjur af aðgengi íbúa að heilsugæslulæknumStofna íbúaráð – Vilja að íbúar komi að ákvarðanatökuÍtrekuð skemmdarverk í Innri-Njarðvík – Rafmagn tekið af fjölbýlishúsi