sudurnes.net
6000 kallinn frá Fiskistofu gefur von um betri tíð - Local Sudurnes
Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar fagnar því að tekjustofn vegna sérstaks strandveiðigjalds hefur margfaldast milli ára. Rétt rúmar 6.000 krónur koma í hlut Reykjaneshafnar þetta árið. Bréf Fiskistofu þar sem tilkynnt er hver hlutur Reykjaneshafnar er í sérstöku strandveiðigjaldi sem innheimt er af strandveiðibátum ár hvert var til umræðu á fundi ráðsins á dögunum og var sérstaklega tekið fram í fundargerð að ört hækkandi hlutur gefi von um betri tíð í framtíðinni. Til samanburðar fékk Reykjaneshöfn rétt tæpar 500 krónur í sinn hlut árið 2019. Meira frá SuðurnesjumVerkfærum og dýrum reiðhjólum stoliðRúmlega 13 milljarða tap hjá IsaviaHaddaway ásamt landsliði tónlistarmanna á Keflavíkurnóttum um helginaNettó átti Árangusríkustu auglýsingaherferðina á síðasta áriUm 40 athugasemdir bárust vegna deiliskipulagsbreytinga við Hafnargötu 12HS Veitur hagnast um 780 milljónir króna – Greiða hálfan milljarð í arð34.000 skjálftar á hálfum mánuðiFjórar orrustuþotur sinna loftrýmisgæsluJólagjafir fyrirtækja á Suðurnesjum – Allt frá sundkortum til utanlandsferðaAfþakkaði styrk úr menningarsjóði – Fjármununum úthlutað aftur