Nýjast á Local Suðurnes

450 einstaklingar sæta sóttkví á Suðurnesjum

Þrír bættust í hóp smitaðra af kórónuveirunni á Suðurnesjum samkvæmt nýjustu tölum á vef Embættis landlæknis og Almannavarna, covid.is. Þannig eru nú 37 smit staðfest á Suðurnesjum. Alls sæta 450 einstaklingar sóttkví á svæðinu samkvæmt sama vef.

Enn er forgangsraðað í sýnatökur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, eins og annarsstaðar á landinu, eftir tilmælum Landlæknis. Ekki er hægt að taka sýni hjá öllum sem uppfylla þau skilyrði sem til þarf og eru sýnatökur háðar mati læknis.

Suðurnesjamenn eru hvattir til að fylgja HSS á Facebook, en þar eru birtar nýjustu fréttir frá stofnuninni.