20 hlauparar hlaupa fyrir Minningarsjóð Ölla í Reykjavíkurmaraþoni - Local Sudurnes
Reykjavíkurmaraþonið fer fram þann 22. ágúst næstkomandi og að venju er hægt að styrkja hin ýmsu góðgerðarfélög eða málefni. Tugir miljóna hafa safnast til á annað hundrað góðgerðafélaga í tengslum við hlaupið ár hvert og hafa upphæðirnar smáar sem stórar skipt félögin miklu máli og verið notaðar í mörg þörf verkefni. Um 20 hlauparar munu hlaupa fyrir Minningar- og styrktarsjóð Ölla sem hefur það að markmiði að styrkja börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna. Örlygur Aron Sturluson va eitt mesta efni í sögu íslensks körfubolta, þegar hann lést af slysförum þann16. janúar árið 2000.. Minnigarsjóðurinn verður með hvatningarstöð á horni Ægisgötu og Mýrargötu, við Hamborgarabúllu Tómasar og Reykjavík Marina Icelandair hótelið. Einnig vilja forsvarmenn sjóðsins minna fólk á að kíkja í sal sem þau hafa til umráða að Laufásvegi 13 (safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Reykjavík) eftir hlaup. Þar verður boðið upp á hressingu, myndatöku og fjör. Hvatningarliðið mun reyna að koma auga á hlauparana okkar en endilega smellið á okkur fimmu ef þið sjáið okkur þegar þið eigið leið um. Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að mæta kl 9 í fyrramálið á hvatningarstöðina og taka þátt í því með okkur að hvetja hlauparana áfram. [...]