15 milljóna vinningur til Reykjanesbæjar
Eigandi vinningsmiða í Happdrætti DAS, sem dreginn var út síðastliðinn fimmtudag, fékk 15 milljónir í sinn hlut.
Maðurinn er búsettur í Reykjanesbæ og sagðist hann hafa haft miklar fjárhagsáhyggjur undanfarið. Vinningurinn „breytti öllu,“ segir í tilkynningu frá Happdrætti DAS.
Í síðustu fjórum útdráttum hafa allir aðalvinningar gengið út.