13 styrkir veittir úr Umhverfissjóði Fríhafnarinnar
Umhverfissjóður Fríhafnarinnar veitti í dag 13 styrki við hátíðlega athöfn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, heildarfjárhæð styrkjanna var tvær milljónir þrjúhundruð og fimmtíu þúsund krónur. Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri og Helga Jónsdóttir stjórnarformaður Fríhafnarinnar afhentu styrkina.
Þetta er í þriðja skipti sem styrkir eru veittir úr Umhverfissjóðnum. Sjóðurinn var stofnaður í maí árið 2012 með það að markmiði að styrkja verkefni á sviði umhverfisverndar, með áherslu á nærumhverfi Fríhafnarinnar.
Meðal þeirrra sem hlutu styrki úr sjóðnum að þessu sinni voru Blái herinn, Leikskólinn Akur, Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Keflavíkur og Knattspyrnudeild UMFN.