Nýjast á Local Suðurnes

12 milljónir króna í boði frá Landsvirkjun

Landsvirkjun hefur opnað fyrir umsóknir um stryki úr Samfélagssjóði fyrirtækisins en 12 milljónum króna verður úthlutað á þessu ári. Umsóknarfrestur er um styrki úr sjóðnum er til 25. mars næstkomandi.

Verkefni sem koma til greina:

Verkefni á sviði umhverfis-, náttúru og auðlindamála
Verkefni á vegum mannúðarsamtaka og líknarfélaga
Listir , menning og menntun
Forvarnar- og æskulýðsstarf
Heilsa og hreyfing

Eins og áður segir mun Samfélagssjóður Landsvirkjunar úthluta að hámarki 12 milljónum í þremur úthlutunum. Að jafnaði eru styrkir á bilinu 100 til 500 þúsund og aldrei hærri en ein milljón króna. Styrkir eru veittir einstaklingum, hópum, sjálfseignarstofnunum og frjálsum félagasamtökum sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni.

Nánar um sjóðinn og úthlutunarreglur hér

Listi yfir fyrri úthlutanir eru hér